Á morgun verður haldin uppskeruhátíð PFR, léttar veitingar verða í boði, verðlaunaafhending og að lokum hið árlega Habilismót.
Tuddar munu að sjálfsögðu fjölmenna á þennan viðburð.
Venjan hefur verið að eftir uppskeruhátíðina hefur heldur róast hjá kösturum og menn gengið inní sumarið með viðeigandi útiveru og útilegum, en við tuddar munum að sjálfsögðu reyna að halda áfram að bæta okkur og nota sumarið til þess.
Þegar kvöld fer að lengja í ágúst munum við síðan herða á æfingum og finna hentugt kvöld til að hittast, kasta og leggja upp hvernig við komum til með að manna liðin fyrir veturinn.