Monday, January 30, 2012

Næstu viðureignir

6.Feb Classic-GGT/Sjonni GGT-Gaurarnir 13.Feb Smarties-GGT GGT/Sjonni-Gaurarnir 20.Feb GGT-ÍR-Gosar GGT/Sjonni sttur hjá Síðan á GGT liðið eftir að spila frestaðan leik á móti Dartfellaws. Þegar að þessum leikjum er lokið er fyrri umferð annarar deildar PFR lokið og þann 5 mars hefst síðan seinni umferðin.

Þrautsegja GGT/Sjonna

Fjórða umferð PFR fór fram í kvöld. Lið GGT sat hjá og sá þar af leiðanadi um sjoppuna. Lið GGT/Sjonna keppti við sterkt lið Smarties sem var í öðru sæti af þeim liðum sem sett voru í aðra deild. Aðeins þrír keppendur mættu frá hvoru liði og var stillt upp frá því, Sjonnaliðið komst í hann krappan í upphafi leiks og töpuðu fimm fyrstu viðureignum kvöldsins, en þá hrukku liðsmenn GGT/Sjonna heldur betur í gang og röðuðu inn vinningum og er koma að loka viðureigninni kvöldsins var staðan 7-5 fyrir Smarties og aðeins ein viðureign eftir, en samkvæmt nýju fyrirkomulagi gildir lokaviðureignin þrjú stig og skipti engum togum en Sjonnar unnu þar glæstan sigur í oddaleik,sigur vannst með minnsta mun 8-7, vel gert GGT/Sjonni. Keppendur kvöldsins hjá GGT/Sjonna voru Sjonni, Palli og Hemmi.

Monday, January 23, 2012

GGT-GGT(/Sjonni

Stór umferð fór fram í kvöld er hin stórkostulegu lið GGT og GGT Sjonni öttu saman kappi, eftir æsilega keppni unnu hinir reynslu hoknir liðsmenn GGT sigur 14-1, alltof stór sigur miðað við spilamennsku liðsmanna, t.a.m átti Hermann (Hemmmi) skor sem skilaði hinu sjaldgæfa round of nine, í krikket en round of nine er bara á færi heimsklassa spilara, seinna í leiknum sjálfum tók Togginn 171 stig sem einnig er sjalfgjæf.

Sunday, January 22, 2012

Þorramót GGT

Þann 21 jan fór fram Þorramót GGT í pílukasti, spilað var nýtt fyrirkomulag, sem nefnist " Tuddenburg von Guttorms system ", þar sem ljóst var að nokkur afföll yrðu úr liði GGT var brugðið á það ráð að bjóða nokkrum velvöldum atvinnumönnum til leiks, fimm tuddar mættu til leiks og sjö aðrir þáðu boðið og mættu. þ.a. keppendur voru samtals  tólf.
Eftir jafna og spennandi keppni deildu tveir keppendur efsta sætinu og réði þá innbyrgðisviðureign úrslitum.
Leikar fóru svo.
1. Þröstur ( 69ers )           73 stig
2. Einar   ( ÍR-Ásar )        73 stig
3. Jónas  ( GGT )              67 stig
4. Sveinn ( Classic )         54 stig
5. Sæmi   ( 26ers )           50 stig
6. Ívar     ( GGT )             38 stig
7-8 Jobbi ( GGT )             27 stig
7-8 Freddi ( Dartfellaws )  27 stig
9 Toggi   ( GGT )              26 stig
10-11 Sigurjón ( GGT )     19 stig
10-11 Bjarni ( Classic )     19 stig
12 Ingvar ( án liðs )            7 stig

Tuesday, January 17, 2012

Tudda píla..


Næsta laugardag mun pílulið GGT vera með tuddakvöld í pílu, hefjast herlegheitin kl 19:30 og verður leikið í Pílusetrinu sem er á horni Skúlagötu og Vitastíg, Vitastígsmeginn fyrir ofan Dómínós pizzu, sem er ská á móti mjög svo sérstökum saksóknara, rétt vestan við Hótel Barón.

Spilaður verður skemmtilegur leikur sem verður við allra hæfi.

Fyrir laugardagsþyrsta verður bjór í boði og kostar hann 500 kall ( ½ líter )

Koma svo tuddar og sýnum samstöðu, game on.

Monday, January 16, 2012

Liðamót PFR

Nú er seinnihluti deildarkeppni PFR farið að stað og GGT liðin tvo eru bæði í annari deild þeirrar keppni. eftir að tvær  umferðir eru búnar og hefur lið GGT/ Sjonna spilað tvo leiki, í fyrstu umferð tapaði Sjonna liðið gegn ÍR-Gosum 11-4 en í lið i ÍR-Gosum er hin magnaða Viktoría fyrirliði og stýrir sínum mönnum með sóma. Lið GGT átti að keppa við gott lið Dartfellaws en þeir gátu ekki mannað liðið vegna ófærðar.

Önnur umferð GGT/Sjonni kepptu þá við Dartfellaws sem komust loks til byggða og máttu lúta í lægra haldi 12-3, megin orsök fyrir döpru gengi má segja að sumir tóku landsleik í handbolta fram yfir liðsandan í pílunni og aðrir voru veikir, þ.a. aðeins þrír kepptu gegn góðu líði, þar af einn lánsmaður.

GGT liðið reið þó feitari hesti eftir viðureign kvöldsins, unnu frábært lið Classic 8-7 eftir að hafa verið undir 7-4, frábær endasprettur sem gefur góð fyrirheit um að GGT verði í toppbaráttu annarardeildar í vetur.
Koma svo TUDDAR.



Sunday, January 15, 2012

Pílulið GGT 2011-2012

GGT.
Fyrirliðin er Þorgeir ( Toggi  ), aðrir eru Ágúst ( Gústi ), Jónas ( Jonni ), Jón Björn ( Jobbi ) og Ívar.

GGT/Sjonni.
Fyrirliðin er Sigurjón ( Sjonni ) aðrir eru Páll ( Palli ), Jón ( Camson ), Hermann ( Hemmi ),
Ásgrímur ( Ási ), Azam ( Az ).

Pílarar

Hér kemur listi yfir þá sem hafa kastað pílum fyrir GGT í gegnum árin,
Kári Þórðarson, Azam Khan, Halldór Í Guðnason, Jón Camson,
Þór Jónsson, Rúnar Árnason, Þorgeir Einarsson, Stefán Waagfjörð
Ágúst Guðmundsson, Sigurjón Hauksson, Jónas Guðmundsson,
Guðni Ólason, Jón Björn Geirsson, Páll Stefánsson, Ívar Jörundsson,
Hermann Hreinsson, Ingvar J Tryggvason og Ásgrímur S.
Þetta eru 18 pílarar og eflaust eru þeir eitthvað fleiri.

Saga píluliðs Guttorms tudda.

Það var á haustdögum árið 2008 sem nokkrir vaskir menn ákváðu að senda lið í pílukeppni PFR ( Pílufélag Reykjavíkur ).
Síðan þá hefur verið talsverð þróun og endurnýjun hjá liði GGT.
Í dag teflir GGT fram tveim liðum í liðakeppni PFR, annarsvegar GGT og hinsvegar GGT/Sjonni.