Nokkrir leikir fóru fram í gær í risariðlinum okkar,helst bar til tíðinda að Óskar tapaði leik, en Gústi lagði hann 3-0, Sjonni átti útskot uppá 100, Ella skoraði 165, Ívar tók tonn 80 í fyrsta kasti í upphitun( 180 er farið að detta inn hjá Ívari við vandræðalegustu aðstæður ) og síðan áttu aðrir eftirminnileg low skor.
Nu eru þeir sem hafa spilað flesta leiki rúmlega hálfnaðir með sína leiki í mótinu og ef þeir sem hvað fæsta leiki hafa spilað skila sér vel eftir áramót ættum við auðveldlega að geta klárað mótið í vor og hvernig væri þá að skella á góðu hófi hjá okkur tuddunum.
Thursday, December 13, 2012
Thursday, November 29, 2012
Silfurmót.
Næstu tvö mánudagskvöld verður spilað svokallað silfurmót, að venju töfrar Björgvin fram nýtt fyrirkomulag, maðurinn er náttúrulega bara snillingur, fyrirkomulagið verður í stuttu máli á þessa leið, forgjafarmót þar sem hvert lið fær jafn mörg stig í forgjöf og staða þess er í liðakeppnini, t.d. það lið sem er í 4 sæti, sem erum reyndar við fá 4 stig í forgjöf, hvert lið sendir að minnsta kosti tvö tveggja manna lið ( það verður tvímenningur ), spilað best af 5, í riðlum 4-7 pör í riðli, fyrir að vinna legg fást 5 stig þ.a. það lið sem vinnur viðureignina fær 15 stig, síðan eru stig fyrir QP eins og við þekkjum og einhverjir aðrir variantar, það verður því þannig að það verða fullt af möguleikum á stigum fyrir hverja viðureign og líka það að það lið sem tapar viðureignini getur í raun samt unnið viðureignina þ.s. það verða stigin sem ráða og þá væntanlega fjöldi stiga í riðli sem segja til um hvar hvert par endar.
Nú þurfa liðsstjórar að vera klárir með hverjir spila sem pör því að sömu tveir verða að spila saman út í gegnum mótið, best er ef liðsstjórar geri það í samvinnu við sína liðsmenn og allir séu sáttir við sinn makker.

Tuesday, November 27, 2012
Nánast loka umferð PFR
Í kvöld spiluð flest lið sinn loka leik í liðamóti PFR, eitthvað stóðu upplýsingar í okkar mönnum þ.s. Gaurar mættu ekki til leiks, sennilega vegna skorts á röngum misskilningi, en þeir áttu leik gegn Uppáhaldsdrengjun,
GGT/Sjonni spilaði gegn Dartfellaws og máttu þola tap 3-11, gaman var að sjá þennan hóp mæta með 5 manna lið. GGT/Ívar spilaði gegn Classic og töpuðu okkar menn 2-12. GGT liðið spilaði gegn liði Darthside og þar höfðum við sigur 11-3.
Nú er liðakeppninni lokið hjá flestum liðum aðeins eftir að spila nokkra frestaða leiki og ljóst er að lið GGT mun enda í 4 sæti og munu þ.a.l keppa í A-deild eftir áramót, en það er besti árangur okkar frá upphafi í liðakeppnini, hin þrjú liðin munu spila í B-deild.
Af öðrum ekki eins spennandi leikjum ( fyrir okkur ) ber að nefna að lið 26ers vann KR-inga í hreinum úrslitaleik nokkuð örugglega.
Dagskráin framundan í Pílusetrinu fram að áramótum er á þessa leið.
3 des Silfurmót
7.des Dömupíla
10.des Silfurmót
12.des Risariðill GGT
13.des Skjöldur & Platti
17.des Jólamót
28.des Bombumót
síðan er spurning hvort að sé vilji fyrir risariðli sunnudaginn 30 ?

Thursday, November 22, 2012
Þriðja kvöld risariðilsins
Í kvöld héldum við áfram með okkar risariðill, segjast verður að mörg óvænt úrslit hafi litið dagsins ljós en þau verða ekki rakin hér, keppendur hafa spilað mismarga leiki sem stafar af því að sumir hafa mætt öll 3 kvöldin aðrir tvisvar og nokkrir aðeins einu sinni, ef allir leikir verða spilaðir verða þeir 190 sem er all nokkuð, af þeim eru nú búnir 54 þ.a. keppni er vel farin af stað og staðan er eftirfarandi.
1. Óskar 7 vinningar
2. Dóri taxi 6 vinningar
3-5 Gústi 5 vinningar
3-5 Jonni 5 vinningar
3-5 Toggi 5 vinningar
6-7 Jobbi 4 vinningar
6-7 Rúnar 4 vinningar
8-9 Sjonni 3 vinningar
8-9 Siggi 3 vinningar
Aðrir hafa færri vinninga en samt eru margir þeirra með gott vinningshlutfall og geta því vel blandað sér í baráttunna þar sem þeir eiga mun fleiri leiki eftir en þeir sem hafa flesta vinninga
Síðan reynum við að spila tvisvar í næsta mánuði, fyrst um miðjan mánuðinn og vonandi eigum við síðan.
möguleika á að spila nokkra leiki á milli hátíða.

Monday, November 19, 2012
Tap fyrir KR-ingum og fleiri fréttir
Í kvöld áttu lið Sjonnans og Ívars að leika saman er þeim leik var frestað vegna skorts á spilurum
GGT liðið att kappi við KR-inga, það verður að viðurkennast að þeir eru enn of stór biti fyrir okkur, ólseigir skrattakollar, og frábærir pílarar, tuddarnir náðu að sigra tvo leiki en KR-ingar tóku 12 vinninga, þess skal þó getið okkar mönnum til framdráttar að allmargir leikir enduðu í odda, fréttaritari leggur til að næst er liðin mætast bjóðum við KR-ingum í tívolí og sendum þá í fimmtán rússíbanaferðir og lokum þá síðan inni í draugakastala, einnig er spurning hvort við bjóðum þeim gómsætar skjálftatöflur, en þetta yrði þá allt gert í mestu góðsemd við þessa sóma menn og rétt til að jafna leik.
Gaurarnir spiluð gegn liði Smarties, leik var ekki lokið er blaðið fór í prentun og verður viðureignini gerð betri skil síðar, er fréttaritari yfirgaf höfuðstöðvar píluspilara stefndi í æsispennandi lok.
Fimmtudaginn 22 nóv ( næsta fimmtudag ) höldum við áfram með risariðilinn okkar, reynum að ná nokkrum leikjum og píla af afli.
Einnig er spurning hvort liðsmenn Sjonnans og Ívars hins vaska taki sinn frestaða leik í liðakeppnini, hvernig eru þið stemmdir fyrir fimmtudeginum ? gott væri að vita nokkurnveginn og u.m.b. hverjir koma og hverjir ekki.
Eitt að lokum, eftir að hafa verið í Tyrklandi komu margar góðar hugmyndir fram, ein er sú að taka létta keppni við Akureyringa í vor, löng helgi fyrir norðan, sveitakeppni Þór Akureyri gegn GGT þann 4 apríl sem er á fimmtudegi, á föstudeginum og laugardeginum verður síðan Akureyri open, vonandi með fjölmörgum tuddum, gaman væri að geta mætt með ca +10 manna sveit.
Monday, November 12, 2012
Fréttaritari í verkfalli !
All langt er síðan okkar háæruverðugi fréttaritari hefur haft fyrir því að koma inn færslu á þennan góða miðil, það kann að stafa af því að hann þóttist upptekinn af landsliðsverkefni, það er kannski rétt en þó engin afsökun því Tuddinn skal ávallt koma í fyrsta sætið og verðskuldar sína umfjöllun.
Það sem hefur gerst síðan í síðustu færslu er að liðin hafa spilað nokkra leiki en ekki verðskuldað jafnmarga sigra og liðinu sæmir, liðin hafa ýmist spilað tvo eða þrjá leiki, GGT liðinu hefur reyndar gengið all sæmilega og unnið tvo þeirra, unnu GGT/Ívar 10-4 eftir erfitt start, töpuðu síðan gegn 26ers 4-10 þó að þar unnust frábærir sigrar og í kvöld hafði liðið betur gegn skemmtilegu liði Classic 9-5 eftir magnaða baráttu, en eins og svo oft áður byrjaði lið GGT ansi illa en hitnuðu er líða tók á leikinn.
Gaurar og lið Sjonnans áttu í kvöld kappi við tvö bestu lið Reykjavíkur, Gaurar kepptu gegn mögnuðu liði 26ers og máttu þola tap 1-13, lið Sjonnans keppti gegn þeim herramönnum sem spila fyrir KR og töpuðu 2-12 hreint ekki slæmt tap gegn þeim miklu herramönnum, en Bingó og Rúnar unnu Kristinn og Guðmund og Jón Helgi vann Kristján, til að vinna slíka snillinga þarf meðfædda hæfileika, gæði, snilli og áræðni.
Nú þegar óskaplega lítið er eftir af liðakeppni PFR er ljóst að lið GGT muni spila í A deild eftir áramót en hin GGT liðin í B deild.
Í upphafi komum við brattir til leiks með 4 lið, mæting liðsmanna er æði misjöfn og alltof oft eigum við í basli með að manna öll lið, nú vantar okkur 2-3 nokkuð virka spilara til að geta haldið úti 4 liðum eftir áramót, valið stendur um að stilla upp 3 eða 4 liðum, ef við stllum upp þrem liðum er hætta á að lið mæti með 7 leikmenn á kvöldi og þá fá menn ekki að spila, fréttaritari telur heillavænlegra að liðið finni þrjá nýja liðsmenn til að styrkja hópinn og geta stillt upp fjórum liðum

Wednesday, October 24, 2012
Annar í risariðli.
Í kvöld spiluðum við okkar annað kvöld í risariðlinum, Lorens og Haukur mættu nýir inn í kvöld og á styrktarmóti Toggans komu þeir Gústi og Bingó og spiluðu sína fyrstu leiki, það eru sem sagt 20 fallegir keppendur á þessu góða móti, í kvöld söknuðum við hins vegar þeirra Ellu, Jóns Camsonar, Ívars bílstjóra og Kristaps.
Nú er mótið komið ágætlega af stað og hafa leikmenn spilað frá einum til fimm leiki hver, fullt hús hafa Óskar, Gústi og Jonni.
Staðan er á þá leið.
nafn vinningar leikir
Gústi 4 4
Óskar 4 4
Dóri taxi 4 5
Jobbi 4 5
Jónas 3 3
Rúnar 3 5
Toggi 3 5
Ívar bílstjóri 2 2
Lorenso 2 3
Ella 2 3
Halldór Ívar 2 4
Sjonni 2 5
Aðrir hafa lítilega færri vinninga, en munu eflaust auka við sína vinninga á næstu Tuddakvöldum.
Stefnum á næsta kvöld 3 eða 4 miðvikudag í Nóvember síðan legg ég ti að við hittumst tvisvar í desember t.d. um miðjan mánuðinn og síðan að finna góðan dag á milli jóla og nýárs.

Monday, October 22, 2012
Sjötta umferð og rúmlega það hjá sumum.
Í síðustu viku tókust liðsmenn GGT/Ívars á við lið Smarties, leikurinn var færður fram um nokkra daga vegna landsliðsverkefnis liðsmanns Smarties, ekki voru okkar menn í sínu besta formi og máttu þola tap 12-2.
Í kvöld hins vegar spiluð Ívaringar mun betur er þeir kepptu gegn samherjum hjá GGT, eftir 6 viðureignir var staðan jöfn 3-3, þá loks tóku liðsmenn GGT við sér og höfðu sigur 10-4, þess skal getið að lukkan var oft í liði GGT, Anders hin danski liðsmaður GGT/Ívars fór mikinn í kvöld og skoraði grimmt en því miður er hans dvöl hér á landi að ljúka og mun hann ekki spila meira með liðinu.
GGT/Gaurar áttu í kvöld leik gegn Eftirköstum og máttu þola tap 10-4, lið Sjonnans átti að keppa gegn Mad Vikings en þeim leik var frestað vegna landsliðsverkefnis liðsmanns Villtra Víkinga.
Þegar að flest lið hafa spilað sex umferðir hafa okkar liðsmenn hlotið eftirtalda vinninga GGT/Ívar 1.
GGT/Sjonni 1, GGT/Gaurar 2 og lið GGT hefur 4,5 vinninga.
Að lokum vil ég minna á risariðilinn næsta miðvikudag og einnig kvetja sem flesta af okkar liðsmönnum að mæta á KR open, frábært mót sem mun skila miklu í reynslubankann.

Thursday, October 18, 2012
Risariðilinn heldur áfram, og Togginn heldur stórmót á morgun
Jæja " Tuddar" miðvikudaginn 24 okt höldum við áfram með risariðilinn hjá okkur, vonandi getum við komist eitthvað áfram með hann, 16 manns hófu leik og eftirtaldir hafa tvo vinninga eftir fyrsta kvöld Jonni, Jobbi, Ívar bílsstjóri, Ella og Rúnar fleiri munu koma inn og taka þátt.
Í kvöld 19 okt munum við hins vega spila tudda um hina ágætu nafnbót Togginn 2012, þar gefst mönnum ágætis tækifæri á að taka nokkra leiki í risariðlinum okkar, koma svo mæta styðja Toggann og kasta pílum í feita reiti.
Tuesday, October 16, 2012
Í það minnsta tvö mót framundan.
Næsta föstudag mun fréttastjóri þessa dálkar, liðsstjóri landsliðsins, hópstjóri GGT og almennur vandræðapési halda sitt eigið styrktarmót til að reyna að létta undir þeim mikla kostnaði sem munu hljótast af liðsstjórastarfi, austur í Tyrklandi, ekki fer mikið fyrir hógværð hjá pilti þar sem hann hefur keypt verðlaunagripi fyrir mótið en keppt verður um sæmdarheitið Togginn 2012,
Miðvikudaginn 24 okt munum við síðan halda áfram með risariðilinn okkar og spila af mikilli snilli.

Monday, October 15, 2012
Það gekk á ýmsu í kvöld.
En og aftur var innanfélags viðureign hjá Tuddum. í kvöld áttust við í innanfélagsviðureign Gaurar og Ívarar, ( ( þess skal getið að vegna gríðarlegrar stærðar "Tudda" er alltaf von á innanfélagsviðureign ), í þesssari viðureign höfðu liðsmenn Dórans nauman sigur 8-6, en höfðu þó leikinn í nokkuð öruggum höndum þar sem þeir höfðu landað 8 punktum fyrir loka viðureignina.
Lið Sjonnans átti í höggi við all þokkalega vel skipuðu liði 26-ers, ekki náðu okkar menn sér á skrið og máttu þola naumt tap ( 0-14 ) en þess skal getið að andstæðingarnig geta vart verið andstyggilegri.
Síðast en ekki síst átti lið GGT góða viðureign gegn frábærum Uppáhaldsdrengjum, þar fór fram hörku viðureign, eftir byrjunina stóðu okkar menn nokkuð vel að vígi, eftir sex leiki stóðu leikar 4-2 fyrir GGT en þá fóru hlutir og örlög að ganga gegn okkur og skyndilega höfðu Uppáhaldsdrengir snúið á okkur og breyttu stöðunni í 5-7 fyrir lokaviðureignin, en þá börðu menn sér saman og lönduðu sigri í lokaviðureignini og eins og þeir sam hafa agnar ögn af piluviti vita þá gefur lokaviðureignin tvo punkta, niðurstaðan varð því fyrsta jafntefli íslandssögunar í liðakeppni PFR, eða allaveganna telur fréttastjóri píluliða GGT svo vera...

Saturday, October 13, 2012
Áríðandi tilkynning--KR intenational open
Laugardaginn 3 nóv halda KR-ingar sinn árlega KR intenational open, ég hvet ykkur til að fjölmenna á þetta mót og get fullyrt að þetta er skemmtilegasta mót ársins, þó með fullri virðingu fyrir öllum hinum frábæru mótunum.
Alsherjar kynningu af mótinu má sjá á pila.is

Monday, October 8, 2012
Loksins loksins
Nú loksins þegar u.þ.b 80 dagar eru eftir af þessu ári tapaði lið GGT í liðakeppnini, verðugir andstæðingar okkar í kvöld voru hinir rafmögnuðu liðsmenn Eftirkasta, jafnt var á öllum tölum og fyrir loka viðureignina stóðu leikar 6-6, í lokaleiknum töpuðu okkar menn með minnsta mun, frábær viðureign þar sem sigur gat dottið hvoru megin sem var. og þess skal getið að þetta er fyrsta tap GGT á þessu ári.
Í kvöld stilltu liðsmenn GGT fram nýjum liðsmanni sem er Guðmundur Valur Grindjáni, hann stóð sig virkilega vel og verður okkur tuddum frábær liðstyrkur og með hann innanborðs eru góðar líkur á að okkar menn muni standa í toppbaráttunni í vetur, næsta mánudagskvöld verður álíka rimma þ.s. liðsmenn GGT munu etja kappi við mjög svo öflugt lið Uppáhaldsdreng
Önnur lið GGT öttu í kappi við fjandsamlega góð lið en tóku þó ýmist tvo eða þrjá vinninga gegn þeim sem er nokkuð vel að verki staðið.
Tilþrif kvöldsins áttu klárlega Jonni með innskot uppá 120 og síðan fyrsta tonn átttíu okkar liðsmanna í vetur en það átti Óskar.

Monday, October 1, 2012
En og aftur mánudagspíla
Í kvöld kepptu engin af okkar liðum innbyrgðir en úrslit okkar liða voru á þessa leið.
Gaurar- Classic 3-11
Smarties-GGT 2-12
GGT/Ívar-Mad Vikings 8-6
Eftirköst-GGT/Sjonni 0-14
Athygli vekja frábær leikur hjá GGT/Ívars liðinu, Gaurarnr voru hálf vængbrotnir þ.s. Dórinn sjálfur þurfti að yfirgefa vetfang fyrir allar aldir, Sjonna liðið átti á brattan að sækja gegn feyki öflugu liði en voru þó óheppnir að sækja ekki einhverja vinninga, GGT liðið vann góðan sigur gegn Smarties og hafa liðsmenn fullt hús stiga og greina má stíganda í liðinu.
Tilþrif kvöldsins voru annarsvegar hjá Togganum en hann átti innskot uppá 100 kall og síðan Gústi með frábært útskot uppá 109, 3x18 einfaldur 19 og tvöfaldur 18.
Uppfærður QP listi og leikjalisti er hér vinstra meginn á síðunni.

Tuesday, September 25, 2012
Smá vinna á síðunni.
Nú hef ég verið að fikta dálítið á síðunni okkar, búin að setja inn hliðarsíður og náði vonandi að opna kommenta kerfið.
Þetta er svosem ekki fullkomið ein hliðarsíðan heitir risariðilin og þar á ég í erfiðleikum með að koma töflunni allri fyrir.

Monday, September 24, 2012
Önnur umferð, frábær sigur hjá Sjonnanum.
Í kvöld fór fram önnur umferð í liðakeppni PFR.
Lið GGT/Sjonna vann frábæran sigur gegn liði Smarties 8-6 en lið Smarties teflir fram landsliðsmanni í pílu sem er hún Peta og býr liðið yfir mikilli reynslu.
GGT/Ívar lék gegn líklega sterkasta liði landsins sem er 26ers, okkar lið mátti þola tap 12-2 sem eru samt sem áður nokkuð góð úrslit,nú hafa strákarnir spilað við tvö bestu félagslið landsins, tapað nokkuð stórt en þó sótt sigra, nokkuð sem mörg lið munu ekki gera gegn þessum risum.
Að lokum áttust við félagarnir úr liði GGT og GGT/Gaurum, eftir harða rimmu höfðu liðsmenn GGT sigur 9-5, Gaurarnir koma hinsvegar mun sterkari til leiks en fréttaritari hafði átt von á og gaman verður að fylgjast með hvað þeir gera gegn liðum eins og Classic og Dartfellaws.
Tilþrif dagsins áttu án efa annarsvegar Jonni með innskot uppá 120 og síðan átti Ívar Páls, frábær en þó dapurleg tilþrif er hann sprengdi 180.
Í næstu umferð munu okkar lið keppa gegn eftirfarandi liðum.
Smarties-GGT
GGT/Ívar-Mad Vikings
Eftirköst-GGT/Sjonni
GGT/Gaurar-Classic
Loksins fáum við viðureignir þar sem okkar lið eru ekki að spila innbyrgðis.
Nú þurfum við að koma á kerfi þar sem liðsstjórar hvers liðs fái boð frá sínum félagsmönnum um hvort þeir muni mæta, okkur vantar dálítið uppá að vera með fullmönnuð lið, þ.e.a.s 5 manna lið sem mætir, við höfum breiðan hóp en þurfum þó að halda eilítið betur utanum hlutina þ.a. ekki komi til úthringinga á síðustu stundu.
GGT liðið fékk þær slæmu fréttir að Ívar bílsstjóri þyrfti að draga sig í hlé um nokkurt skeið sökum axlarmeiðsla, hugsanlega í allan vetur, hann skilur eftir sig skarð sem verður erfitt að manna þar sem um góðan pílara og félaga er um að ræða, vonum að hann nái sér sem fyrst og hjarta hans slái en hjá okkur tuddunum er öxlin grær.

Friday, September 21, 2012
Risariðill GGT og leikur kláraður
Í gærkvöld hittust" tuddar" og spiluðu pílu af miklum móð, fyrst tóku lið GGT/Gaura og GGT/Sjonna frestaðan lokaleik frá síðasta mánudagskvöldi, Gaurar höfðu sigur í þeim leik og unnu því viðureignina 9-5.
Keppni í risariðli GGT hófst einnig, 15 voru mættir til leiks og píluðu af list, misjafnt var hvessu marga leiki hver keppandi lék ýmist 1,2 eða 3. Mörg góð tilþrif sáust m.a. átti Ívar Páls tveggja pílu útskot uppá 100, og Jobbi náði tonn áttatíu og margir voru að spila gott píl.
Næsta mánudag eigum við eftirfarandi leiki
26 ers-GGT/Ívar
GGT/Gaurar-GGT
Uppáhaldsdrengir-GGT/Sjonni

Monday, September 17, 2012
Fyrsta liðamótakvöldið af mörgum í vetur.
Þá er fjörið byrjað því í kvöld fór fram fyrsta kvöld liðamóts PFR í vetur, hlutskipti okkar liða voru nokkuð misjöfn í kvöld og aðeins fengust úrslit í tveim viðureignum hjá liðum GGT þar sem sú ákvörðun var tekin að fresta 13danum í leik GGT/Gaurar gegn GGT/Sjonni þar sem sá leikurin drógst um of á langin, þar er staðan 7-5 fyrir GGT/Gaura og eiga því liðsmenn Sjonnans færi á að jafna leikinn ef þeir vinna loka leikinn, en það yrði þá fyrsta jafntefli í liðaleik PFR í fleiri ár en elstu menn muna, sem stafar að því að breytt fyrirkomulag liðamóts leyfir nú að jafntefli verði í viðureign, vinni hinsvegar GGT/Gaurar lokaleikinn verða úrslit 9-5 fyrir GGT/Gaura.
GGT/Ívar ( strákarnir okkar ) Kepptu í kvöld við lið KR, en KR-ingarnir áttu um sárt að binda eftir háðulega útreið á knattspyrnuvellinum kvöldið áður, okkar lið átti ekki mikla möguleika gegn þessu sterka liði og máttu játa sig sigraða 13-1, aðeins Jobbi náði að leggja andsstæðing sinn, en það er alveg á hreinu að KR-ingar eru með eitt allra sterkasta liðið í deildinni í vetur.
GGT liðið með nýja liðstjórann sinn ( Gústa ) í fararbroddi att kappi við hið gamalgrónna lið Dartfellaws, oft hafa viðureignir þessara liða verið mikil rimma, en í kvöld höfðum við öruggan sigur 12-2, þrátt fyrir að okkar menn hafi spilað nokkuð undir getu, t.a.m skoruðu allir liðsmenn GGT álíka mörg QP í kvöld og Jonni skoraði einn að meðaltali á kvöldi síðasta vetur..
Þar sem það kláruðust ekki allir leikir GGT í kvöld verður ekki farið nákvæmlega í tölfræði liðsmanna, en vonir standa til að lokaleikurinn verði kláraður næsta fimmtudag, eða um leið og við hefjum leik í " Risariðlinum ".
Nokkur atriði sem vert er að hafa í huga fyrir veturinn.
Vinstra megin á siðunni okkar er hlekkur sem vísar á hver af okkar liðum eigi leik við og þá við hvaða lið.
GGT/Gaurar ætla að óska eftir því við andstæðinga sína að fá að hefja leik fyrr eða kl 19:00.
Risariðillinn hefst núna á fimmtudaginn og hafa rúmlega 20 manns skráð sig til leiks, skipulag á slíku móti getur verið dálítið snúið en verður samt sem áður vel framkvæmanlegt af okkar hálfu, enda tómir snillingar á ferð.
Áður var ég búin að boða að gjaldið fyrir Risariðillinn skildi verða 1000 kr, gleymdi ég þá að reikna með að greiða þyrfti fyrir spjaldaleigu sem er 500 kr á mann á kvöldi, eftir spjall við formann PFR þá var ákveðið að við þyrftum að greiða spjaldaleigu fyrir hvert kvöld er spilað yrði en við fengjum þó einhvern afslátt, og sá afsláttur kemur á móti 1000 kallinum er ég hafði boðað og mun renna í verðlaunasjóð.
Ef einhver afgangur verður þá mun hann notast í hugsanlega skuld sem getur myndast í liðsumslögin.
Næsta laugardag verður tiltektardagur í pílusetrinu og þar sem við Tuddar eigum rúmlega 33,33% af spilandi liðum á liðamótinu þá væri mjög gott ef við gætum sent einhverja fulltrúa sem gætu tekið til hendini á Skúlagötunni, þó ekki væri nema í 1-2 klukkutíma, tiltekt hefst að ég held kl 10:00 fyrir hádegi og stendur fram eftir degi.
Sjálfur er ég að hugsa um að gera líkt og samferðafólk mitt sem er á leið á EM í pílu sem fer fram í Tyrklandi eða að halda mitt eigið stuðningsmót ( snýkjumót ) til að létta undir því fjárhagslega útláti sem svona för mun hafa í för með sér og treysti ég að að fá aðstoð frá einhverjum ykkar fyrir þennan gjörning.
Að lokum er spurning hvort við þurfum að henda inn pöntun á fleiri liðstreygjum.

Thursday, September 13, 2012
Liðamót PFR, breytingar og aðrar upplýsingar.
Nokkrar breytingar verða gerðar á fyrirkomulagi liðamóts PFR í vetur, hér koma þær helstu.
Lokaleikurinn ( 13in ) verður eins og hann var spilaður eftir áramót, en unnin leikur gefur tvö stig í stað þriggja sem þýðir að viðureign getur endað með jafntefli 7-7.
Hvert lið má sækja um frestun á leik tvisvar yfir veturinn og til að frestun teljist gild þarf liðsstjóri þess liðs sem óskar eftir frestun að hafa samband við liðsstjóra þess liðs sem keppt skal við og gera það fyrir kl 16 á leikdegi.
Fyrir mánaðarmót sept-okt þarf liðsstjóri hvers liðs að senda inn lista yfir þá leikmenn sem notaðir verða í liðum sínum, ekki verður heimilt að lána menn á milli liða, þó má bæta við leikmönnum sem ekki eru skráðir í önnur lið, hvorki er um hámarks né lámarks fjölda leikmanna að ræða í hverju liði.
Fyrir áramót spila allir við alla og síðan verður deildarskipt í A og B deldir eftir áramót.
Ég óskaði eftir að fá að hreyfa lítillega mannskap á milli okkar liða eftir að haustmóti líkur ( s.s. fyriir deildarskiptingu ), þannig að ef við náum að eiga lið í A deild að við gætum hugsanlega verðlaunað spilara sem er að bæta sig mikið með því að spila með því liði.
Ekki fengust endanleg svör við fyrirspurn minni en vonandi fáum við svör áður en það kemur að því að við sendum inn endanlega liðsskipan.
Ábyrgð liðsstjóra er að halda utan um liðsumslöginn, koma upplýsingum frá PFR á framfæri við sína liðsmenn og ef um kvartanir er að ræða þá er það verk liðsstjórans að koma þeim á framfæri við stjórn PFR.
Sjoppan, þar sem öll lið eru að spila í einu og ekkert lið situr hjá þá fá ávallt tvö lið ábyrgðina með umsjón á sjoppunni, þau verða væntanlega tekin fram þegar ljóst verður hverjir spila við hverja og hvenær.
Tekin verður saman mánaðarlega skuldalisti, allir liðsstjórar fá síðan þennan lista í liðsumslagið og ef um einhvern skuldseiga í liðinu er að ræða skal liðsstjóri kvetja viðkomandi um að gera skuld sína upp.
Gjaldið fyrir kvöldið verður það sama og áður eða 2500 kr á lið, en árgjald PFR meðlims mun hinsvegar hækka úr 2000 kr á ári í 3000 kr.
Hugmynd er uppi um að hvert lið eða tvö lið í sameiningu haldi saman skemmtikvöld einu sinni á vetri, hluti að innkomu mundi þá renna til liðsins, við förum létt með það, er það ekki ?
Framkvæmdardagur, ákveðið var að halda framkvæmdardag laugardaginn 22 sept, það er hagur okkar allra að hafa huggulegt í Pílusetrinu þetta er okkar félagsmiðsstöð.
Að lokum var dregið í töfluröð fyrir liðamót vetrarins og svona lítur hún út, það skal þó tekið fram að liðsnöfn eru ekki öll á hreinu.
1. 26ers
2. KR
3. GGT-3 ( Ívar )
4. Vikings Viktoriu
5. Dartfellaws
6. GGT/Gaurar
7. Smarties
8. Eftirköst
9. Uppáhaldsdrengir
10. GGT/Sjonni
11. GGT
12. Classic

Monday, September 10, 2012
Platínummót...
Í kvöld fór fram "Platínummót " PFR í Pilusetrinu að Skúlagötu..Sem er einskonar upphitunar mót fyrir liðakeppnina,
Spilaður var tvímenningur þar sem menn ýmist komu með nýliða til leiks eða voru dregnir með öðrum spilara sem makker.
Margir Tuddar voru mættir og segja má að langflestir hafi staðið sig mjög vel.
22 pör spiluðu og það er skemmst frá að segja að fjórir tuddar enduðu í fyrstu 4 sætunum.
Sigurvegarar mótsins voru þeir Ívar Pálsson og Ægir Ö Björnsson, en Ívar er borinn og barnfæddur "tuddi" sem stóð sig frábærlega með mjög góðum makker, en þeir lögðu í úrslitaleik Pál Stefánsson sem mun víst vera faðir Ívars en Páll spilaði með landsliðsmanninum Hallgrími Egilssyni ,Ívar og Ægir unnu úrskitaleikinn 3-1
Í fjórða sæti lentu síðan GGT parið Óskar og Jobbi, en þeir töpuðu fyrir Bóbó og Bjarna, rúmlega allsæmilegum pílurum, aðrir sem stóðu sig vel hjá Tuddunum voru, Haukur ,Dóri taxi,Jón Helgi, Jonni, Sjonni, Toggi og síðast en ekki síst þeir Gústi og Bingó sem unnu B-riðilinn á mjög sannfærandi hátt en lutu síðan í gras fyrir góðum andstæðingum í 8 manna úrslitum..
Næsta mánudag hefst síðan liðamót PFR, gert er ráðð fyrir að 12 lið mæti til leiks og að venju verður stillt upp þannig að allir spila við alla fyrir áramót en eftir áramót verður deildarskipt, .þ.a 6 efstu spila í A- deild en hin í B-deild.
Formaður GGT vonast til að allaveganna einn lið nái í A-deild og muni berjast um að vera í einu af þrem efstu sætunum er yfir líkur, gott væri ef annað lið mundi vera í A-deild, en umfram allt öll liðin mundu skila sér í viðunandi sæti og að þeir sem keppa fyrir hönd GGT muni hafa gaman af að keppa fyrir þennan klúbb og sýna háttvísi og bera virðingu fyrir annars góðum andstæðingum
Lengi lifi tuddinn !!!!

Tuesday, September 4, 2012
Tillaga að uppstillingu píluliða GGT.
Hér kemur smá tillaga að liðaskipun fyrir veturinn, nöfn liðanna eru ekki endanlega ákveðin en ef þið hafið tillögur þá eru þær vel þegnar og einnig ef þið viljið koma með aðrar tillögur að liðsskipan.
Næsta mánudag er metalmót og það er um að gera að mæta og ræða málin eftir á ef einhverjir hafa athugasemdir við uppstillingu liða, þann 17 sept hefst síðan sjálft liðamótið.
23 eru komnir á þennan lista og 16 þeirra hafa gefið jákvætt svar um að taka þátt í risariðli okkar, að auki ætla þeir Jón Camson og Rúnar Árnason að taka þátt, það gera 18 manns og vonandi eiga að minnsta kosti tveir eftir að bætast í hópinn.
Eins og þið sjáið eru sumir skráðir í tvö lið og aðrir í eitt, við þurfum að hafa það þannig til að geta brugðist við afföllum.
En eigum við vonandi eftir að fá fleiri nöfn hjá Gaurunum, spurning með Lúlla og Jörund, Dóri getur þú svarað því ?

| Ágúst Guðmundsson | GGT |
| Ásgrímur Reisenhus | GGT-sunny |
| Baldur Ingólfsson | GGT-strákar |
| Daníel | GGT-sunny |
| Guðni Ólason | GGT-Gaurar/ GGT-sunny |
| Halldór Guðmundsson | GGT-Gaurar |
| Halldór Ívar Guðnason | GGT-sunny |
| Haukur Pálsson | GGT-strákar |
| Hermann Hreinsson | GGT-sunny |
| Ívar Jörundsson | GGT |
| Ívar Pálsson | GGT-strákar |
| Jón Björn Geirsson | GGT/ GGT-strákar |
| Jón Helgi | GGT-sunny |
| Jónas Guðmundsson | GGT |
| Kári Þórðarson | GGT-strákar |
| Lorense | GGT-Gaurar |
| Nicolai | GGT-Gaurar |
| Óskar Freyr Pétursson | GGT/ GGT-strákar |
| Páll Stefánsson | GGT-sunny/GGT-strákar |
| Philip | GGT-Gaurar |
| Sigurður | GGT-Gaurar |
| Sigurjón Hauksson | GGT-Gaurar/ GGT-sunny |
| Þorgeir Einarsson | GGT/ GGT-strákar |
23 eru komnir á þennan lista og 16 þeirra hafa gefið jákvætt svar um að taka þátt í risariðli okkar, að auki ætla þeir Jón Camson og Rúnar Árnason að taka þátt, það gera 18 manns og vonandi eiga að minnsta kosti tveir eftir að bætast í hópinn.
Eins og þið sjáið eru sumir skráðir í tvö lið og aðrir í eitt, við þurfum að hafa það þannig til að geta brugðist við afföllum.
En eigum við vonandi eftir að fá fleiri nöfn hjá Gaurunum, spurning með Lúlla og Jörund, Dóri getur þú svarað því ?
Thursday, August 23, 2012
Upphitun tuddana
Í kvöld hittust 11 af tilvonandi liðsmönnum GGT og köstuðu pílum sér til upphitunnar og ræddu fyrirkomulag okkar fyrir komandi átök í vetur, ljóst er að "Tuddarnir" munu marka sögu hjá PFR í vetur þar sem að hingað til hafa lið mest stillt upp tveim liðum í liðakeppni PFR, en það gerðum við einmitt síðasta vetur, en frá því síðasta vetur hafa gamlir og nýjir spilarar streymt til liðs við GGT og þar af leiðandi munum við stilla upp 4!!! liðum næsta vetur, stefnan er að eiga eitt lið í fremstu röð en til að það sé mögulegt þurfa liðsmenn að bæta sig lítið eitt, hin liðin gera sitt besta og þá er aldrei að vita hvað gerist, gaman væri að eiga eitt topp lið og síðan hugsanlega tvö önnur lið sem verða svokölluð sputnik lið.
Einnig var ákveðið að "Tuddanir" tækju frá þriðja fimmtudagskvöld í hverjum mánuði og spiluðu sín á milli, til að efla liðsandan og bæta getu hvers og eins leikmanns.
Spilaður verður svokallaður risariðill þar sem allir spila við alla, best af fimm, stefnt verður að því að klára riðillin fyrir áramót og þá yrði skipt upp í A og B deild, og þá verður spilaður útsláttur, verðlaun fyrir þrjá efstu í risariðli og fyrstu þrjú sætin í A og B deild, gjald fyrir hvern og einn verður 1000 kall á keppanda, einnig er spurning hvort við verðlaunum ekki þann sem á hæsta útskot, fæstar pílur og margt fleira í lokahófi sem við munum halda að þessu afstöðnu.
Strax eru skráðir 9 keppendur til leiks en þeir eru Ívar bílstjóri, Jobbi krútt, Gústi, Ási dekk, Toggi, Jonni, Hemmi, Sjonni og Bingó, gaman væri ef 16-20 manns tækju þátt í þessu móti.

Thursday, August 9, 2012
Styttist í vetrarstarf, nóg á döfinni framundan.
Í kvöld fóru fram hinir mánaðarlegu, Skjöldur og Platti, óvenju fjölmennt var að þessu sinni og ber það vott um að dagurinn sé styttri en áður þetta sumarið og jafnframt þýðir það að haustið sé á næsta leyti eða í það minnsta innan hálfs árs.
Einn " Tuddi " tók þátt í Skyldinum, Ívar bílstjóri, hann ók sér greiðlega í gegnum riðlakeppnina og komst í átta manna úrslit, þar lenti hann gegn hinum magnaða Ægi og beið lægri hlut.
Í Plattanum gekk okkur "Tuddum" hins vegar öllu betur en þar áttum við þrjá fulltrúa í undanúrslitum, þess skal þó getið að Tuddar hafa oftar en ekki staðið sig geysivel í Plattanum, Í fyrsta sæti lenti okkar efnilegasti Tuddi, nýliði GGT liðsins Óskar Freyr, annar varð síðan formaðurinn Toggi og þriðja sætið féll í hlut Bjarna Classic en hann hafði betur í viðureign um þriðja sætið gegn Jobba krútttudda, aðrir sem kepptu fyrir hönd GGT í Plattanum voru Gústi og Sjonni.
Nú liggur frammi tillaga um að hafa Tuddakvöld þann 23 ágúst en þá er ætlunin að kasta pílum og ræða skipulag okkar fyrir næsta tímabili, hvernig lýst ykkur á þessa dagsetningu ?
Annað sem er framundan er að næsta laugardag verður SEX píla í kjölfar af Gay Praid göngu, klukkan SEX í pílusetrinu, mót til styrktar pílulandsliðinu sem mun taka þátt í Evrópumóti landsliða í haust.
Þar sem formaðurinn hefur bolað sér inn í landsliðið sem liðsstjóri er ætluninn að hann haldi sitt eigið styrktarmót sem mun væntanlega fara fram í september og ekki þætti honum verra að liðsmenn GGT myndu hjálpa við skipulagningu og mótahald.
Einnig hefur liðsstjóri Íslenska landsliðsins í pílukasti lagt til að IPF muni halda firmakeppni í pílukasti, þ.s fyrirtæki komi með þriggja manna lið og etji kappi gegn öðrum fyrirtækjum.

Monday, July 23, 2012
Næsti vetur.
Sælir félagar.
Ætlunin var að hafa eitt gott GGT gigg í ágúst, ég óska eftir dagsetningum sem henta sem flestum.
Nú er ljóst að við munum stilla upp að minnsta kosti þrem liðum næsta vetur, hef trú á að þau gætu orðið fjögur um áramótin, en það er þó mín skoðun að við ættum að byrja með þrjú lið í haust og sjá hvernig menn eru að skila sér á liðamótin.
Hvernig líst ykkur á að við höfum eitt gott mót síðla í ágúst og finnum síðan góða dagsetningu einu sinni í mánuði þar sem við hittumst og köstum saman, bjóðum þá gömlum tuddum að koma og leika með okkur, skellum kannski upp í einn risariðil og keppum innbyrgðis, með þeim sem eru að koma nýir inn hjá okkur næsta haust þá telur sá hópur hátt i 30 manns, það gæti orðið ágætis risariðill sem tæki væntanleg nokkur kvöld, það mætti jafnvel taka nokkra leiki eftir að liðamót er búið á mánudagskvöldum, færi þó allt eftir hve snemma lið hafi lokið leik.
Ég óska einnig eftir að fleiri komi að skriftum á þessa síðu ( okkar síðu ).
Ef við leggjum góða rækt við æfingar hef ég fulla trú á að við gætum átt eitt lið sem verður í toppbaráttunni næsta vetur.

Thursday, June 14, 2012
Uppskeruhátíð PFR
Á morgun verður haldin uppskeruhátíð PFR, léttar veitingar verða í boði, verðlaunaafhending og að lokum hið árlega Habilismót.
Tuddar munu að sjálfsögðu fjölmenna á þennan viðburð.
Venjan hefur verið að eftir uppskeruhátíðina hefur heldur róast hjá kösturum og menn gengið inní sumarið með viðeigandi útiveru og útilegum, en við tuddar munum að sjálfsögðu reyna að halda áfram að bæta okkur og nota sumarið til þess.
Þegar kvöld fer að lengja í ágúst munum við síðan herða á æfingum og finna hentugt kvöld til að hittast, kasta og leggja upp hvernig við komum til með að manna liðin fyrir veturinn.

Wednesday, May 9, 2012
Skjöldur og Platti !!
Það muna allir eftir skjöld og platta á morgun fimmtudag 10 mai
mæting fyrir 19:30 og byrjað að spila stuttu síðar
Landsliðið verður á staðnum með pressumót þannig að það verður nóg um að vera !
Sjáumst hress
Game on !

Sunday, May 6, 2012
Að afstöðnu Íslandsmóti.
Nú er Íslandsmótinu í pílukasti (501) lokið, rúmlega 30 keppendur mættu til leiks og keppt var í einmenningi og tvímenningi.
Frá GGT mættu fjórir keppendur, það voru þeir Gústi, Sjonni, Jonni og Ívar "trukkatuddi" eða trukkurinn eins og hann skal nefndur upp frá þessu.
Markmið yfirtudda voru að eiga mann í áttamanna úrslitum, bæði í einmenningi og tvímenningi, markmiðin gengu eftir, í einliðaleik komust þeir Gústi og Trukkurinn í 16 manna úrslit en máttu þar þola töp þrátt fyrir hetjulega baráttu gegn reynsluríkum mótherjum, Sjonni komst ekki uppúr sínum riðli en Jonni náði að leggja reynsluboltan og margfaldan landsliðsmann Friðrik Diego að velli 4-2, en Jonni tapaði síðan fyrir Þresti 2-4, þess skal getið að Þröstur hampaði síðan Íslandsmeistara titlinum.
Allir liðsmenn GGT voru að spila vel í einmenningskeppninni og því ber að fagna.
Á sunnudaginn var síðan keppt í tvímenning þar kepptu saman Jonni og Gústi, Sjonni keppti með Gissuri frá Akureyri og Trukkurinn keppti með Skúla SWAT, allir komust þeir í áttamanna úrslit en fyrir því eru góð og gild rök sem ekki verður farið út í hér, en lengra komust liðsmenn GGT ekki, þess skal þó getið að þeir voru allir að spila undir getu og hefðu á góðum degi geta gert betur.
Framtíðarmarkmið yfirtudda eru eftir þetta Íslandsmót, á Íslandsmótum næsta árs munu tuddar eiga 6-8 fulltrúa á öllum þrem Íslandsmótunum, ef ekki á næsta ári þá í síðasta lagi á þar næsta ári skulu tuddar eiga verðlaunahafa, án þess þó að kaupa sér liðsstyrk.

Friday, May 4, 2012
Uppfærð staða
Hér vinstra meginn ásíðunni er krækja sem heitir staðan í annari deild, hef nú uppfært stöðunna.
Thursday, May 3, 2012
Íslandsmótið í pílu ( 501)
Íslandsmótið í pílu verður haldið í Pílusetrinu um helgina, liðsmenn GGT munu tefla fram að minnsta kosti fjórum fulltrúum þeim Jonna, Ívari, Sjonna og Gústa, fréttaritara ggtpílu hefur ekki haft spurnir af fleiri Tuddum sem munu taka þátt í Íslandsmótinu en gaman væri ef það kæmu fleiri og máluðu salinn appelsínugulan og svartan, von þess er þetta ritar og ritar reyndar flestar greinar á þennan vef er þær að við munum eiga fulltrúa í átta manna úrslitum, bæði í einmenningi og tvímenningi, en Tuddar umfram allt hafið gaman af og verið þið klúbbnum til sóma.
Monday, April 30, 2012
Platínumót PFR
Í kvöld fór fram platínumót PFR sem er eitt af þrem góðmálmamótum PFR, spilaður var tvímenningur þar sem dregið var saman eftir QP lista PFR, sextán keppendur mættu til leiks og áttu liðsmenn GGT sex af þeim og að auki einn tilvonandi, óhætt er að segja að sjaldan hafi stjarna "Tuddans" risið jafn hátt þar sem þeir áttu keppendur sem hirtu þrjú efstu sætin, fyrsta sætið féll í hlut Jonna "ofurtudda" en hans makker var Freddi Dartfellaws, annað sætið féll í hlut Togga "yfirtudda" en hann keppti með hinum skelegga Kristni Wium KRings og þriðju urðu síðan Jobbi "krútttuddi" og Bjarni V, þess skal getið að á eftir þeim kom landsliðsmaðurin Einar Möller og Óli.
Þeir liðsmenn GGT sem ekki komust í úrslitakeppnina en fengu þó að spila í B-keppni voru þeir Bingó, Gústi og Sigurjón, Bingó hreppti annað sætið í B-keppninni sem er vel að verki staðið af jafn miklun nýgræölingi sem hann er en hann spilaði með Bóbó Laugvetnigi, Gústi"góðlegi" tók þriðja sætið með tilvonandi GGT manni sem er Dóri taxmann, en eftir frábært gengi þerra á "TUDDAMÓTINU" var búist við meiru af þeim en það kemur bara síðar, síðastur en ekki sístur kom síðan Sigurjón"svakatuddi" hann endaði í fjórða sæti í B-keppninni en hann spilaði með hinni margreyndu og margföldum Íslandsmeistara Petu, en óhætt er að segja að þau hafi oftar en ekki leikið við lánleysi en það er eitthvað sem gerist oft í þessari nákvæmnisíþrótt, en Sigurjón mun mæta sterkur til baka.

Sunday, April 29, 2012
Vormót GGT.
Síðasta föstudagskvöld héldu liðsmenn GGT vorfagnað sinn, efnt var til tveggja móta, 501 forgjafarmót þar sem sumir byrjuðu með 501, aðrir 401 og enn aðrir 301, og síðan var keppt í "TUDDANUM".
Alls mættu þrettán keppendur til leiks, gamalgrónnir tuddar, fyrrum tuddar og væntanlegir tuddar
Í forgjafarmótinu var hart barist en segja má að 501 karlarnir hafi staðið sig einna best m.a náði Jonni 180 stigum en Kjartan 301kall notaði fæstar pílurnar og Sjonni kom skammt þar á eftir.
Úrslit voru á þá leið að Gústi hafði sigur en hann lagði Jonna í úrslitaviðureignini, í leiknum um þriðja sætið börðust þeir Ívar bílstjóri og Halldór Ívar en hann er gamalkunnur tuddi og spilaði með liðinu á upphafsárum GGT í liðakeppni PFR, það er skemmst frá því að segja að Halldór náði að leggja Ívar og náði þar af leiðandi þriðja sætinu.
Að lokum var keppt í tuddanum og til stóð að nota forgjafarfyrirkomulag það líka en þegar á reyndi var ekki þörf á að nota forgjöf þar sem úrslit voru hrein og klár, sigurvegari í "TUDDANUM" í ár er leigubílstjórinn góðlegi Halldór Guðmunds eða Dóri eins og sumir kjósa að kalla hann í öðru sæti varð Gústi en hann var að spila manna best út kvöldið og stóð sig gríðarlega vel og þriðji varð síðan Jonni.
Kvöldið heppnaðist mjög vel hjá okkur tuddum en þó söknuðum við þeirra fjórmenninga Jobba, Palla, Kára og Bingós, þó er vitað að þeir hefðu gjarnan viljað vera með okkur og þeirra var saknað.

Thursday, April 26, 2012
Azam Khan
Az spilaði með okkur fyrstu mánuðina í vetur, hann þurfti síðan að fara af landi brott og var lítið á landinu það sem eftirlifði vetri, hann spilaði fimm kvöld með okkur og alla þá 25 leiki sem voru í boði.
Árangur hans má sjá hér.
301
sigrar 0 töp 5
501 tvímenningur
sigrar 1 töp 4
Krikket tvímenningur
sigrar 1 töp 4
501
sigrar 1 töp 4
801 fjórmenningur
sigrar 0 töp 5
QP´s 20
Hæsta innskot 118
Þess skal getið að lið GGT/Sjonna var oft fáliðað í upphafi móts og þurftu menn þá oft á tíðum að spila tvímenningsleikina einir.
Wednesday, April 25, 2012
Pílukastarar GGT í vetur.
Á næstu dögum mun ég setja inn skýrslur einstakra leikmanna eftir nýyfirstaðið pílutímabil.
17 leikmenn kepptu fyrir lið GGT í vetur, sumir voru bara eitt kvöld en aðrir misstu ekki úr kvöld, þeir sem spiluðu öll kvöldin í liðakeppni PFR hjá liðum GGT voru Jonni, Gústi; Toggi og Sigurjón.
Jobbi missti úr eitt kvöld og Palli mætti mjög vel, aðrir voru ýmist að koma eða fara, en segja má að mikill stöðugleiki hafi komist á lið GGT/Sjonna er þeir Kári, Haukur og Ívar Páls hófu að spila með liðinu, lið GGT fékk síðan frábæran liðsauka er Ívar bílstjóri gekk til liðs við okkar lið, eftir að hann kom til liðsins hefur liðið verið nánast ósigrandi.
Segja má að stöðugleikin hafi jafnvel verið of góður þar sem liðið þurfti oftar en ekki að lána öðrum liðum sem ekki náðu að manna lið sitt leikmenn, sem er bara af hinu góða.
Vonir standa til að á næsta tímabili stilli GGT liðið upp þrem liðum í liðakeppni PFR, nokkrir pílukastarar hafa lýst yfir áhuga á að ganga til liðs við okkar lið og það ber vott um að við séum að gera góða hluti.
Formaðurinn vonar að þeir Camson, Hemmi, Ási, Ingvar og Stebbi Wog fari að mæta því þeir búa allir yfir góðum eiginleikum til píluiðkunnar, Bingó er líklega kominn til að vera og með smá æfingu verður hann án nokkurs vafa verulega góður.
Síðan lumum við fleiri góðum pílurum en það bíður betri tíma að tilkynna það, verða GGT liðin kannski fjögur á komandi vetri ?

Tuesday, April 24, 2012
Monday, April 23, 2012
Flottir tuddar
Liðakeppni PFR í annari deild lauk í kvðld hjá liðum GGT, lið GGT/Sjonna sat hjá og það er ljóst að þeir lenda
í 5ta eða 6ta sæti í mótinu en það fer eftir úrslitum úr frestaðri viðureign í deildinni, árangur sem má vel við una þó litlu mætti muna að liðið hefði náð 3ja sæti.
Lið GGT keppti í kvöld gegn liði ÍR-Gosum en lið ÍR-Gosa hefur á að skipa snoppufríðasta liði í deildarkeppni PFR en þó því skeggprúðasta, leikar fóru svo að lið GGT hafði sigur 12-3 og fara því ósigraðir í annari deild PFR , tólf leikir og tólf sigrar, aldeilis frábær árangur hjá góðu liði, Í kvðld saknaði lið GGT Ívars hins góða en það kom ekki að sök því Palli leyst hann af hólmi og gerði það mjög vel.
Síðan er bara að minna á vormót GGT næsta föstudag sem verður einskonar forgjafarmót þar sem alli eiga möguleika.
Fullt af vinningum og flott keppni í vændum.

Monday, April 16, 2012
"Tuddamót" þann 27unda apríl.
Föstudaginn 27unda apríl verður tuddamót í húsnæði PFR.
Um verður að ræða einskonar forgjafarmót, spilaður verður 501 nema það verður á þann hátt að skipt verður í riðla og liðsmenn GGT byrja með 501 liðsmenn GGT/Sjonna 401 og þeir sem hafa ekki spilað með GGT liðunum undanfarin tvö ár og/eða eru nýliðar byrja með 301.
Verðlaun verða í boði og kostar þar að leiðandi 1000 kall að taka þátt, ef næg þátttaka næst verður boðið til keppni í A og B deild eftir riðlakeppni, því er um að gera að bjóða vinum og kunningjum með til að taka þátt í skemmtilegri keppni.

Sigur og tap hjá GGT liðunum í kvöld.
GGT/Sjonna liðið tapaði fyrir vaxandi liði Gaurana í kvöld, eftir ansi erfiða byrjun mátti Sjonnaliðið þola tap 10-5, liðið náði aðens að rétta úr kútnum í lokaleiknum sem þeir unnu sannfærandi að öðru leiti var fátt um fína drætti, Kári vann þó einmenningsleik og hann og Palli unnu einnig tvímenningsleik saman.
Þess skal gerið að Gaurarnir hafa nú unnið tvo leiki í röð og það er allt annar bragur á liðinu.
GGT liðið vann að venju öruggan sigur og nú á liði Smarties, tap í fyrsta leik í tvímenning og strögl í öðrum leik var þó eitthvað sem var hægt að hafa áhyggjur af en þó ekki lengi, því eftir það leyfði bara kafteininn andstæðingi sínum að sigra, þar hafði Þórdís betur en hún var að spila glimrandi vel í upphafi viðureignar.
Lokatölur í leiknum voru 13-2 fyrir GGT, vel gert liðsfélagar.

Tuesday, April 10, 2012
Nóg um að vera á næstunni.
Góðir hálsar.
Á næstunni verður í mörg horn að líta í pílunni.
núna á fimmtudaginn verður spilaður Skjöldurinn og Gullplattinn, um helgina verður Reykjavíkurmótið í pílu, á mánudaginn verður síðan liðakeppnin að venju GGT spilar gegn Smarties og GGT/Sjonni spilar gegn Gaurunum.
Að lokum er búið að panta salinn fyrir TUDDA kvöld föstudagskvöldið 27 apríl.
Það er um að gera að sýna lit í lokaslagnum og fjölmenna á þessi mót.

Sunday, April 8, 2012
Reykjavíkurmeistaramót !
Pílusetrinu Skúlagötu 26
Reykjavíkurmeistarmótið verður helgina 14. og 15.apríl(næstu helgi)
og byrjar einmenningurinn stundvíslega kl: 11 á laugardeginum.
Spilað verður í karla og kvennaflokki í einmenningi.
Skráningu lýkur kl 10:00
Mótið er eingöngu ætlað félagsmönnum PFR.
Keppnisgjald er 2000 kr .
Þeir sem eiga eftir að greiða félagsjaldið sem er 2000 kr
geta gengið frá greiðslu félagsgjalds á mótsstað.
Stjórn PFR hefur ákveðið að það þarf lágmark 4 keppendur
í hvorum flokki til að keppni verði haldin.
Stjórnin hefur ákveðið að hafa B mót í ár þannig að enginn dettur út úr riðlunum. Þannig vonumst við að fá sem flesta félagsmenn til að taka þátt í okkar aðalmóti. Reykjavíkurmeistaranum. Það eiga allir að spreyta sig og vera með í ár. Sýnum öll metnað og mætum í keppnisskapi.
Sigurvegari B mótsins fær titilinn Hverfismeistarinn.
Á sunnudeginum 15. april kl: 13 verður tvímenningurinn spilaður. Skráningu í tvímenninginn lýkur sama dag kl: 12:00 Keppnisgjaldið fyrir tvímenninginn er 3000 kr á parið.Tvímenningurinn verður blandað mót.Stjórn PFR hefur ákveðið að það þarf lágmark 4 lið til að keppni verði haldin.Skráning í síma 898-8554 Björgvin eða 824-2929 Peta
Verðlaun eru veitt fyrir þrjú efstu sætin í bæði einmenningi og tvímenningi , fyrir hæsta útskotið og fæstu pílurnar.Spilað verður 501.
Spilað verður best af 3 í riðlunum og best af 5 í útslætti.Undanúrslit best af 7 og úrslit best af 5 í 3 settum.Leikmenn fá 5 mínútna hlé á milli setta.Efstu menn á stigalista verða sítaðir inn í riðlana.Spilafyrirkomulag í B-keppninn verður kynnt á mótsdag.
Kveðja Stjórn PRF
Friday, April 6, 2012
Tuddapíla
Greinarhöfundur hefur lagt til að tuddakvöld verði haldið þann 27 apríl.
Spilaður verði stór riðill s.s. allir við alla og verður þá spilaður 501, ef allt gengur að óskur verður líka spilaður 301 og jafnvel líka 201.
Reynt verður að ná sem flestum til keppni sem hafa einhverntíman spilað fyrir pílulið GGT.
Einnig væri hægt að hafa einskonar forgjafarmót, sem gæti verið eitthvað á þessa leið, lið GGT hefji leik með 501, reyndustu menn í liði GGT/Sjonna hæfu leik með 401 og aðrir minna reyndir með 301.

Monday, April 2, 2012
Sigur í höfn...
Gríðalrgur fögnuður braust út er pílulið GGT náði síðum 8unda vinning grgn Gaurunum í kvöld, en þá var ljóst að lið GGT hefði unnið keppni í annari deild PFR, áhangendur liðsins gengu af göflunum afgölunum og ætlaði fögnuði aldei að linna.
Liðið hafði að lokum sigur gegn Gaurunum 13-2, aðeins Jónas og Jobbi lutu í gras í einmenningsleikjum kvöldsins.
Á meðan keppti hið vaska lið GGT/Sjonna gegn vösku liði Classic og máttu þola tap 11-4 eftir snarpa viðureign.
Þess skal getið að lið GGT keppti loksins í nýjum búningi liðsins og segja má að hann hafi verið happadrjúgur fyrir lið GGT og væntingar eru til að lið GGT/Sjonna muni spila betur í nýjum búningi.

Monday, March 26, 2012
Lið GGT/Sjonna sigraði Smarties á mögnuðum endaspretti.
Lið GGT/Sjonna att kappi við lið Smarties í kvöld á meðan GGT liðið sat hjá og stjórnaði kaupfélaginu.
Heldur hallaði á lið Sjonnans í upphafi en með þrautsegju komu liðsmenn sterkir til baka og unnu sigur, fyrir lokaleikinn voru okkar menn tveim vinningum undir en sigur í loka leik gefur þrjú stig og þau höfðust og það nokkuð sannfærandi í lokaleiknum, vel gert strákar.
Önnur úrslit voru liði GGT í haginn í kvöld, Dartfellaws vann Classic í sveifluleik 10-5
og Gaurarnir lönduðu sínum fyrsta sigri er þeir tóku á móti ÍR-Gosum 8-7 enda styrktir af tveim tuddum.
Staðan fyrir loka átökin er þessi
leikir stig unnir/tapaðir
1. GGT 9 9 109/26
2. Dartfellaws 9 6 86/49
3. Classic 9 6 84/51
4. ÍR-Gosar 8 3 49/71
5. Smarties 9 3 52/83
6. GGT/Sjonni 10 3 46/104
7. Gaurarnir 8 1 36/80

Monday, March 19, 2012
GGT-GGT/Sjonni bestir á móti bestum
Viðureign kvöldsins var Darby viðureign GGT gegn GGT/Sjonna.
Eftir snarpa viðureign hafði GGT liðið sigur 13-2, en stærð sigursins má að mestu þakka reynslu GGT manna sem hafði oftar en ekki sigur á útskoti eftir a Sjonnarnir hefðu fengið séns áður á að klára leikina.
Lið GGT/Sjonna var geysi vel mannað í kvöld, svo vel að þeir gáðu leyft sé að lána tvo leikmenn og voru þó með fimm manna lið.
Nú þegar GGT liðin eiga eftir þrjá leiki, er GGT liðið komið með þriggja vinninga forskot á Classic og Dartfellaws og bikarinn í sjónmáli, lið Classic á þó leik til góða, einn sigur í viðbót hjá GGT í liðamótinu ætti að tryggja sigur í B-deild PFR þar sem vinninga hlutfall okkar manna er afburða gott, það mun þó ekki ráðast másta mánudag þar sem GGT situr hjá og stjórnar sjoppunni.
Í viðureign kvöldsins bar lítið á milli liða í QP söfnun, lið GGT skoraði minna en oft áður en lið GGT/Sjonna skoraði nokkuð vel, segja má að sá sem spilaði best í kvöld hafi verið Kári sem spilar með GGT/Sjonna, með örlítið meiri æfingu verður hann topp spilari.

Tuesday, March 13, 2012
Monday, March 12, 2012
Í fantaformi í væntanlegum úrslitaleik.
Lið GGT var í sannkölluðu fantaformi er þeir kepptu gegn liði Classic í kvöld.
Þrátt fyrir að GGT liðin eigi eftir fjóra leiki á þessu tímabili má segja að þatta hafi verið úrslitaleikur um fyrsta sætið í annari deild þar sem lið Classic er það lið sem hefur veitt okkar liði hvað harðasta keppni í vetur.
Eftir góðan sigur í fyrri umferðinni (8-7) var búist við hörku viðureign, og sú var raunin í upphafi, eftir sex viðureiginir stóðu leikar jafnir 3-3, en þá eins og oft áður í vetur læstu liðsmenn hrömmum og neituðu að tapa meira og höfðu sigur 11-4, frábær sigur gegn liði sem svo oft hefur verið á svipuðu róli og lið GGT en þó oftar en ekki haft nauman sigur á okkar liði.
Á meðan áttu samherjar GGT sem eru GGT/Sjonni í harðri viðureign við hið sterka lið Dartfellaws, ekki gengu hlutitnir alveg upp fyrir lið GGT/Sjonna og eins og Bjarni Fel hefði orðað það, GGT/Sjonni mátti lúra í gras 2-13, en þrátt fyrir það þarf ekki að örvænta því lið GGT/Sjonna er að eflast og það er klárt að liðið á eftir að gera góða hluti.
Minni síða á að næsta mánudag er stórviðureign tveggja bestu liðanna GGT-GGT/Sjonni, allir að mæta,
GGT rokkar.......
Í lokin bara til áminningar fyrir þá sem hafa áhuga þá er aðalfundur PFR þann 21 mars.

Monday, March 5, 2012
Góðu kvöldi lokið hjá tuddanum.
Í kvöld spilaði GGT gegn öflugu liði Dartfellaws og að auki var spilaður frestaður leikur frá fyrri umferð liðakeppninar á móti Dartfellaws og þar var staðan 2-2 áður en leik var lokið. Á meðan kepptu GGT/Sjonni við velmannað líð ÍR-Gosa sem söknuðu þó fyrirliða síns hennar Viktoríu sem sat heina með lugnabólgu, hörð viðureign var á milli Sjonnans og liðs Viktoríu og fyrir loka leik voru leikar jafnir 6-6, lokaleikinn unnu síðan lið ÍR-Ása og fóru því leikar 9-6 fyrir ÍR inga. þess skal þó getið að GGT liðar stilltu upp þrem nýjum liðsmönnum þeim Baldri, Hauk og Kára.
Þrír nýir leikmenn sem allir eru bornirm og barnfæddir "TUDDAR" og óhætt er að segja að nýju liðsmenn GGT /Sjonna hafi staðið sig afburða vel m.a. vann hin vígamóði Bingó góðan sigur á Kjaran sem er þeirra besti liðsmaður.
Nú er komið að því að greina frá gangi mála í viðureign GGT gegn, lið Dartfellaw
okkar menn átti sannkallaðin srórleik á móti Dartfellaws og unnu 10-5 eftir að hafa verið yfir 10-2 fyrir lokaleik viðureigninar, góður sigur var því staðreynd gegn einu af því liði sem hefur veitt GGT hvað harðsta keppni í vetur.
Þegar að þessari viðureign var lokið hófst frestuð viðureign þessara sömu liða, áður höfðu liðin spilað báða tvímenningsleikina og var staðan 2-2 að þeim leikjum loknum, elleftu stig voru í pottinum og ljóst er að okkar menn áttu virkilega góðan leik og unnu sannfærandi sigur 12-3.
Meðal stórgjörða dagsins má nefna þrjú góð afrek, Jobbi tók 156 stig inn, Ívar tók út 160 og Togginn tók sitt fyrsta 180 í keppni.

Monday, February 20, 2012
Einn og hálfur leikur hjá GGT og Sjonninn sá um sjoppuna.
Í kvöld var leikin síðasta umferð í fyrri hluta B-deildar PFR.
Lið Sjonnans sat hjá og sá um sjoppuna og óhætt er að segja að þeir hafi staðið vaktina af stakri snilld, Sjonni, Palli og Hemmi voru vaktstjórar hjá GGT/Sjonna og þénuðu vel fyrir annars ágætlega statt félag.
En á meðan kepptu liðsmenn GGT við gott lið ÍR-Gosa
Lið ÍR-Gosa var óvenju vel skipað með Einar, Óskar, Kjaran og Ingibjörgu innanborðs samt sem áður söknuðu ÍRingar greinilega drottningar pílukastsins hennar Viktoríu greinilega, eftir snarpa viðureign fóru leikar svo að okkar lið tók alla vinningana og vann því 15-0, þó svo að GGT hafi saknað Jobba hins snjalla, allir liðsmenn spiluðu vel og fyrsti 15-0 sigurinn sem nokkurt PFR lið hefur unnið, liðsmenn GGT í kvöld voru Toggi, Ívar, Gústi og Jónas.
Þrátt fyrir frábæran árangur bar fátt tik tíðinda en þó er rétt að geta glæsilegs innkast hjá Jónasi en hann skoraði 160 í innskoti.
Eftir þessa góðu viðureign var blásið til frestaðri viðureingar GGT á móti Dartfellaws, sannkölluð stórviðureign þar sem ljóst er að baráttan um B-deildarmeistaran verðu á milli GGT, Dartfellaws og Classic.
Leiknir voru báður tvímenningsleikirnir ogfóru leikar svo
501 Jónas og Gústi töpuðu
Ívar og Toggi unnu
Krikket Toggi og Jónas töpuðu.
Ívar og Gústi unnu.
staðan ef semsagt 2-2 eftir þessar viðureignir, sem se alls ekki slæmt þar sem tvímenningsleikirnir hafa verið helsti Þrándur okkar GGT manna.
Staðaní liðakeppnini er þá á þessa leið þegar hún er hálfnuð, þó að einum leik sé ólokið
stig leikir unnið/tapaðir
1. GGT 5 5 63/12
2. Classic 5 6 63/27
3. Dartfellaws 4 5 55/20
4-5 ÍR-Gosar 5 2 33/57
4-5 Smarties 5 2 33/57
6 GGT/Sjonni 5 2 28/62
7. Gaurarnir 5 2 25/64

Wednesday, February 15, 2012
Saga GGT i pílu viðureignir og framfarir.
Á haustmánuðum árið 2008 kepptu liðsmenn GGT í fyrsta sinn í liðamóti PFR, síðan þá hefur GGT stillt upp liði í liðamóti PFR nánast öll mánudagskvöld að sumrum undantöldum.
Nú er svo komið að margir liðsmenn GGT láta þessi liðamót ekki nægja heldur keppa á hinum ýmsu mótum sem haldin eru á landinu.
Eins og sjá má á upptalningu hér fyrir neðan hefur lið GGT vaxið og þroskast og eru úrslitin sem liðið skilar ávallt betri og betri.
Tímabilið 2008-2009 úrslit í liðamóti.
GGT-Classic 2-11
GGT-Timburmenn 1-12
GGT-KR 0-13
GGT-Smarties 4-9
GGT-SWAT 3-10
GGT-69 ers 0-13
GGT-Dartfellaws 7-6
GGT-Classic 2-11
GGT-Timburmenn 1-12
GGT-KR 1-12
GGT-Smarties 2-11
GGT-SWAT 4-9
GGT-69ers 0-13
GGT-Dartfellaws 3-10
Tímabilið s.s 13 töp og einn sigur.
Tímabilið 2009-2010
GGT-KR 3-10
GGT-Timburmenn 1-12
GGT-Dartfellaws 2-11
GGT-69ers 1-12
GGT-Smarties 5-8
GGT-Classic 4-9
GGT-SWAT 6-7
GGT-ÍR-Ásar 3-10
GGT-KR 2-11
GGT-Timburmenn 1-12
GGT-Dartfellaws 11-2
GGT-69ers 1-12
GGT-Smarties 7-6
GGT-Classic 4-9
GGT-SWAT 4-9
GGT-ÍR-Ásar 3-10
GGT-Þeyr 9-4
GGT-KR 0-13
GGT-Timburmenn 3-10
GGT-Dartfellaws 3-10
GGT-69ers 0-13
GGT-Smarties 2-11
GGT-Classic 3-10
GGT-SWAT 3-10
GGT-ÍR-Ásar 1-12
GGT-Þeyr 8-5
Tímabilið 2009-2010 22 töp og 4 sigrar
Tímabilið 2010-2011
GGT-Uppáhaldsdr 8-5
GGT-Smarties 4-9
GGT-DT 5-8
GGT-Dartfellaws 5-8
GGT-Eftirköst 2-11
GGT-ÍR-Ásar 3-10
GGT-KR 1-12
GGT-Classic 4-9
GGT-Uppáhaldsdr 3-10
GGT-Smarties 6-7
GGT-DT 3-10
GGT-Dartfellaws 9-4
GGT-Eftirköst 4-9
GGT-ÍR-Ásar 6-7
GGT-KR 2-11
GGT-Classic 4-9
GGT-Smarties 7-6
GGT-DT 8-5
GGT-Dartfellaws 5-8
Tímabilið 2010-2011 15 töp 4 sigrar
Tímabilið 2011-2012
GGT-KR 4-9
GGT-ÍR-Ásar 3-10
GGT-Classic 6-7
GGT-Eftirköst 3-10
GGT-Dartfellaws 10-3
GGT-GGT/Sjonni 13-0
GGT-69ers 4-9
GGT-Uppáhaldsdr 4-9
GGT-ÍR-Gosar 7-6
GGT-26ers 6-7
GGT-Smarties 10-3
GGT-Gaurarnir 12-1
GGT-Classic 8-7
GGT-GGT/Sjonni 14-1
GGT-Gaurarnir 14-1
GGT-Smarties 12-3
Tímabilið 2011-2012 7 töp og 9 sigrar átta viðureignir eftir.
Niðurstaðan er þessi
Tímabilið 2008-2009 sigrar 30 töp 153
Tímabilið 2009-2010 sigrar 90 töp 248
Tímabilið 2010-2011 sigrar 94 töp 158
Tímabilið 2011-2012 sigrar 130 töp 86

Monday, February 13, 2012
Góðir sigrar beggja liða.
Bæði GGT liðin unnu sínar viðureignir í kvöld GGT/Sjonni att kappi við Gauranna og höfðu sigur 9-6 í góðum leik,
Nýr liðsmaður bættist í hópinn hjá Sjonna liðinu en það er hin bráðefnilegi Ívar Pálsson, sonur Palla, Ívar skilaði inn dýrmætum sigrum fyrir GGT/Sjonna, aðrir sem kepptu voru Sjonninn sjálfur, Palli og Ívar Jör.
GGT liðið keppti við reynsluhokið lið Smarties og hafði góðan og nokkuð öruggan sigur 12/3, í kvöld kepptu þeir Gústi, Jobbi, Jónas og Toggi fyrir GGT liðið.
Staðan í B-deild er þessi er langt er liðið á fyrri hluta B-deildar PFR
spilaðir leikir Stig unnur&tapaðir leikir
1 GGT 4 4 48/12
2 Classic 5 4 52/23
3 Dartfellaws 4 3 41/19
4 ÍR-Gosar 5 2 33/42
5 Smarties 5 2 32/43
6 GGT/Sjonni 6 2 28/62
7 Gaurarnir 4 0 19/41

Monday, February 6, 2012
Misjafnt gengi GGT liðanna.
Fjórða umferð liðamóts PFR fór fram í kvöld.
GGT/Sjonni keppti við hið fíleflda lið Classic og mátti þola tap 12-3, sem eru þó ekki svo slæm úrslit þar sem lið Classic er gríðalega vel mannað og helsta ógn GGT liðsins í harðri baráttu um sigur í annari deild PFR, góðir sigrar unnust hjá GGT/Sjonna m.a átti Ívar stórleik og skoraði 7 QP í krikketleik liðanna sem vannst síðan nokkuð auðveldlega Aðrir sem spiluðu fyrir GGT/Sjonna í kvöld voru Sigurjón kafteinn, Palli og Hemmi.
GGT liðið keppti hins vegar við Gaurana sem tefldu fram nýjum liðsmanni sem lofaði góðu fyrir þeirra lið, skemmst er að segja að lið GGT vann sannfærandi sigur 14-1, góður sigur sem þó hefði hæglega getað orðið naumari.
Allir liðsmenn GGT spiluðu glimrandi vel og Jonninn sjálfur tók auðvelt tonn áttatíu, vel gert hjá honum.
Þeir sem lögðu GGT liði í kvöld voru Jónas, Toggi, Gústi og Jobbi.
Monday, January 30, 2012
Næstu viðureignir
6.Feb
Classic-GGT/Sjonni
GGT-Gaurarnir
13.Feb
Smarties-GGT
GGT/Sjonni-Gaurarnir
20.Feb
GGT-ÍR-Gosar
GGT/Sjonni sttur hjá
Síðan á GGT liðið eftir að spila frestaðan leik á móti Dartfellaws.
Þegar að þessum leikjum er lokið er fyrri umferð annarar deildar PFR lokið og
þann 5 mars hefst síðan seinni umferðin.
Þrautsegja GGT/Sjonna
Fjórða umferð PFR fór fram í kvöld. Lið GGT sat hjá og sá þar af leiðanadi um sjoppuna.
Lið GGT/Sjonna keppti við sterkt lið Smarties sem var í öðru sæti af þeim liðum sem sett voru í aðra deild.
Aðeins þrír keppendur mættu frá hvoru liði og var stillt upp frá því, Sjonnaliðið komst í hann krappan í upphafi leiks og töpuðu fimm fyrstu viðureignum kvöldsins, en þá hrukku liðsmenn GGT/Sjonna heldur betur í gang og röðuðu inn vinningum og er koma að loka viðureigninni kvöldsins var staðan 7-5 fyrir Smarties og aðeins ein viðureign eftir, en samkvæmt nýju fyrirkomulagi gildir lokaviðureignin
þrjú stig og skipti engum togum en Sjonnar unnu þar glæstan sigur í oddaleik,sigur vannst með minnsta mun 8-7, vel gert GGT/Sjonni.
Keppendur kvöldsins hjá GGT/Sjonna voru Sjonni, Palli og Hemmi.
Monday, January 23, 2012
GGT-GGT(/Sjonni
Stór umferð fór fram í kvöld er hin stórkostulegu lið
GGT og GGT Sjonni öttu saman kappi, eftir æsilega keppni unnu hinir reynslu hoknir liðsmenn GGT sigur 14-1,
alltof stór sigur miðað við spilamennsku liðsmanna, t.a.m átti Hermann (Hemmmi) skor sem skilaði hinu sjaldgæfa round of nine, í krikket en round of nine er bara á færi heimsklassa spilara, seinna í leiknum sjálfum tók Togginn 171 stig sem einnig er sjalfgjæf.
Sunday, January 22, 2012
Þorramót GGT
Þann 21 jan fór fram Þorramót GGT í pílukasti, spilað var nýtt fyrirkomulag, sem nefnist " Tuddenburg von Guttorms system ", þar sem ljóst var að nokkur afföll yrðu úr liði GGT var brugðið á það ráð að bjóða nokkrum velvöldum atvinnumönnum til leiks, fimm tuddar mættu til leiks og sjö aðrir þáðu boðið og mættu. þ.a. keppendur voru samtals tólf.
Eftir jafna og spennandi keppni deildu tveir keppendur efsta sætinu og réði þá innbyrgðisviðureign úrslitum.
Leikar fóru svo.
1. Þröstur ( 69ers ) 73 stig
2. Einar ( ÍR-Ásar ) 73 stig
3. Jónas ( GGT ) 67 stig
4. Sveinn ( Classic ) 54 stig
5. Sæmi ( 26ers ) 50 stig
6. Ívar ( GGT ) 38 stig
7-8 Jobbi ( GGT ) 27 stig
7-8 Freddi ( Dartfellaws ) 27 stig
9 Toggi ( GGT ) 26 stig
10-11 Sigurjón ( GGT ) 19 stig
10-11 Bjarni ( Classic ) 19 stig
12 Ingvar ( án liðs ) 7 stig

Tuesday, January 17, 2012
Tudda píla..
Næsta laugardag mun pílulið GGT vera með tuddakvöld í pílu,
hefjast herlegheitin kl 19:30 og verður leikið í Pílusetrinu sem er á horni
Skúlagötu og Vitastíg, Vitastígsmeginn fyrir ofan Dómínós pizzu, sem er ská á
móti mjög svo sérstökum saksóknara, rétt vestan við Hótel Barón.
Spilaður verður skemmtilegur leikur sem verður við allra
hæfi.
Fyrir laugardagsþyrsta verður bjór í boði og kostar hann 500
kall ( ½ líter )
Koma svo tuddar og sýnum samstöðu, game on.
Monday, January 16, 2012
Liðamót PFR
Nú er seinnihluti deildarkeppni PFR farið að stað og GGT liðin tvo eru bæði í annari deild þeirrar keppni. eftir að tvær umferðir eru búnar og hefur lið GGT/ Sjonna spilað tvo leiki, í fyrstu umferð tapaði Sjonna liðið gegn ÍR-Gosum 11-4 en í lið i ÍR-Gosum er hin magnaða Viktoría fyrirliði og stýrir sínum mönnum með sóma. Lið GGT átti að keppa við gott lið Dartfellaws en þeir gátu ekki mannað liðið vegna ófærðar.
Önnur umferð GGT/Sjonni kepptu þá við Dartfellaws sem komust loks til byggða og máttu lúta í lægra haldi 12-3, megin orsök fyrir döpru gengi má segja að sumir tóku landsleik í handbolta fram yfir liðsandan í pílunni og aðrir voru veikir, þ.a. aðeins þrír kepptu gegn góðu líði, þar af einn lánsmaður.
GGT liðið reið þó feitari hesti eftir viðureign kvöldsins, unnu frábært lið Classic 8-7 eftir að hafa verið undir 7-4, frábær endasprettur sem gefur góð fyrirheit um að GGT verði í toppbaráttu annarardeildar í vetur.
Koma svo TUDDAR.

Sunday, January 15, 2012
Pílulið GGT 2011-2012
GGT.
Fyrirliðin er Þorgeir ( Toggi ), aðrir eru Ágúst ( Gústi ), Jónas ( Jonni ), Jón Björn ( Jobbi ) og Ívar.
GGT/Sjonni.
Fyrirliðin er Sigurjón ( Sjonni ) aðrir eru Páll ( Palli ), Jón ( Camson ), Hermann ( Hemmi ),
Ásgrímur ( Ási ), Azam ( Az ).

Pílarar
Hér kemur listi yfir þá sem hafa kastað pílum fyrir GGT í gegnum árin,
Kári Þórðarson, Azam Khan, Halldór Í Guðnason, Jón Camson,
Þór Jónsson, Rúnar Árnason, Þorgeir Einarsson, Stefán Waagfjörð
Ágúst Guðmundsson, Sigurjón Hauksson, Jónas Guðmundsson,
Guðni Ólason, Jón Björn Geirsson, Páll Stefánsson, Ívar Jörundsson,
Hermann Hreinsson, Ingvar J Tryggvason og Ásgrímur S.
Þetta eru 18 pílarar og eflaust eru þeir eitthvað fleiri.

Saga píluliðs Guttorms tudda.
Það var á haustdögum árið 2008 sem nokkrir vaskir menn ákváðu að senda lið í pílukeppni PFR ( Pílufélag Reykjavíkur ).
Síðan þá hefur verið talsverð þróun og endurnýjun hjá liði GGT.
Í dag teflir GGT fram tveim liðum í liðakeppni PFR, annarsvegar GGT og hinsvegar GGT/Sjonni.

Subscribe to:
Comments (Atom)